Skip to product information
1 of 5

gkdottir knits

Heilög þrenning uppskrift

Heilög þrenning uppskrift

Regular price 900 ISK
Regular price Sale price 900 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Þessi vettlingaþrenna er hluti af gjörningnum „Húsin í bænum“, sjö pörum af vettlingum sem sækja fyrirmynd sína í hafnfirsk kennileiti. Eins og nafnið gefur til kynna eiga þessir uppruna sinn í innviðum Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Verkefnið var unnið í samvinnu við Garnbúð Eddu á Strandgötunni og garnið að sjálfsögðu handlitað í Hafnarfirði, af stöllunum í Today I Feel á Hólshrauninu.

Litir og mynstur vettlinganna í Heilögu þrenningunni koma fyrir á veggjum, gólfi, handriðum, lofti og predíkunarstóli kirkjunnar sem eru öll hin mesta prýði. Þar sem erfitt er að koma öllum mynstrunum á einn vettling varð það úr að gera þrjár útgáfur – í anda heilagrar þrenningar.

Vettlingarnir eru prjónaðir frá stroffinu og fram, annað hvort með magic-loop aðferðinni (og þá gjarnan báðir í einu) eða með sokkaprjónum. Báðir eru prjónaðir eins.

Prjónar: Hringprjónn eða sokkaprjónar í grófleikanum 2,5 eða 3mm eða þeim grófleika sem þarf til að ná réttri prjónfestu.

Aukahlutir: 2 prjónamerki, stoppnál.

Prjónfesta: 30L í sléttu prjóni í hring = 10cm

View full details