gkdottir knits
Random uppskrift
Random uppskrift
Couldn't load pickup availability
Random er hekluð ofan frá í heilu lagi, berustykkið er með laska-lagi og að því loknu er skipt í ermar og bol. Ermar og bolur eru hekluð beint niður. Unnið er með dæmigert „granny-square“ heklmynstur (ömmudúllu), þ.e. klasa af 3 stuðlum með 1 loftlykkju á milli (3 Ll á mótum fram/bakstykkis og erma).
Garn
Allskonar garn (gjarnan afgangar) með grófleika á bilinu frá fingering til DK,
jafnvel rúmlega það. Hægt er að vinna með einn aðallit og aukaliti að vild.
Ég notaði 1 dokku af Lana Grossa: Mellenweit 100 Color Mix Sparks, lit 7614
(100g/400m) sem grunnlit í peysuna á myndunum.
Magn Peysan á myndunum (L) vegur alls 370g
Aukahlutir 4 opnanleg prjónamerki
Heklunál 5-6 mm, eftir því hve fast er heklað
Heklfesta: 8 umf og 5 stuðlaklasar (3 St með 1 Ll á milli) gera 10x10cm.
Stærð Tvær grunnstærðir, S/M og L/XL. Munurinn milli þessara stærða felst í vídd hálsmáls og breidd handvegar. Síðan ræðst stærðin að vild af því hversu djúpt berustykkið er heklað. S/M verður nær S ef berustykkið er grunnt, en nær M með dýpra berustykki. Sama með mun á L/XL. Hægt er að draga saman hálsmálið að vild.
English:
Crocheted from the top down, with raglan yoke separated into body and sleeves. Sleeves and body crocheted straight. Technique used is typical granny-square, clusters of 3 double crochet sts (US) separated by 1 chain st (3 ch sts at raglan intersections).
Yarn
All kinds of yarn (leftovers or stash is perfect) ranging in weight
from fingering to DK, even heavier. You can use one main color
and as many contrasting ones as you like. Variegated yarn works
great. I used 1 skein of Lana Grossa: Mellenweit 100 Color Mix
Sparks, col 7614 (100g/400m) as main colour in the sample
shown.
Quantity Sample shown (L) weighs 370 g in total
Notions 4 opening stitch markers.
Hook size 5-6 mm, depending on gauge.
Gauge 8 rounds and 5 dc clusters (3 dc‘s separated by 1
ch) make 10x10cm.
Sizes Two basic sizes, S/M and L/XL. The difference consists in neckline width and underarm width. Apart from that, the sizing (width) depends on how deep you make the yoke. S/M becomes closer to S if the yoke is shallow, and more like M with a deeper yoke. Same applies to L/XL. Length of body and sleeves is up to choice.
