Kaldá knits
Séra Jón uppskrift
Séra Jón uppskrift
Couldn't load pickup availability
Ég keypti ullarband beint frá býli sem bar svo skemmtilegt nafn að ég varð að gera úr því mynstur. Býlið þekki ég reyndar frá fyrri tíð, þar sem vinir mínir áttu það áður og peysurnar Hafið eða fjöllin og Urðarskál rekja báðar uppruna sinn til útsýnisins frá bæjarstæðinu í Önundarfirði.
Það fylgdi semsagt sögu þessarar svörtu ullar að hún væri af hrúti sem héti Séra Jón. Mér fannst einboðið að nota hana í mynstur innblásið af hrútshornum, en vissi þá reyndar ekki hvað Sérann sjálfur var glæsilega hyrndur – sjá mynd.
Mynstrið á undan stroffunum á bol og ermum vísar til örlagaþráðarins sem skapanornirnar Urður, Verðandi og Skuld spunnu og er nikk til framleiðanda bandsins sem myndar uppistöðu peysunnar, ullarvinnslunnar Urðar.
Aðferð
Peysan byrjar á tvílitri uppfitt, er prjónuð ofanfrá og skipt í ermar og bol að loknu berustykkinu. Bolurinn er prjónaður án útaukninga eða úrtöku en undir miðjum ermunum eru reglulegar úrtökur.
Stroffið í hálsmálinu er sérkennilegt að því leyti að það er tvílitt.
Garn Grunnlitur: Urður ull, Heiður (mógolsótt) (100g/200m)
Mynsturlitur: Hér umrætt band af Séra Jóni (50g/100m), en má gjarnan vera Heiður eða annað sambærilegt ullarband
Magn Grunnlitur: 350, 370 (390, 420, 440) 460, 490 g
Mynsturlitur: 100, 105 (110, 120, 125) 130, 140 g
Prjónar Hringprjónar nr. 4,5 í meginfleti og 4 í stroff. Athugið að aðlaga prjónastærð að
prjónfestunni ef þörf krefur.
Prjónfesta Slétt einlitt prjón í hring: 19 lykkjur gera 10cm.
Stærðir 1, 2 (3, 4, 5) 6, 7 - Yfirvídd: 96, 104 (113, 122, 130) 138, 146 cm
