Alva uppskrift
Alva uppskrift
Alva er prjónuð í hring ofan frá og niður með svokallaðri „contiguous sleeve method“ sem er nk. aðlöguð laskaermi. Fyrst er einungis aukið út á fram- og bakstykki, síðan eingöngu á ermum og loks bæði í einu. Útkoman líkist ísettri ermi og í þessu tilfelli verður fallegt litaspil að auki.
Snúrukantar (I-cord) eru í hálsmáli, fremst á ermum og neðst á bol. Boðið er upp á tvær
útfærslur á hálsmáli, þvert að framan (forsíðan) og lækkað að framan (rauðlita eintakið).
Það þvera er allt prjónað í hring en hið lækkaða fram og til baka fyrstu 4-8 umferðirnar.
Prjónfesta: 19 L og 23 U mælt í sléttu prjóni í hring gefa 10x10cm.
Prjónar: 5mm hringprjónar (eða sú stærð sem gefur rétta prjónfestu) 4,5mm fyrir
snúrukanta.
Garn: Icewear garn, Nordic, 100% merino (50g/108m)
Líka tilvalið að nota afganga í DK-grófleika, til dæmis með því að halda saman einum þræði af fingering og einum af mohair.
5 stærðir, yfirvídd 88, 103, 118, 133 og 147 cm í yfirvídd.