kalda knits
Fold klútur prjónauppskrift
Fold klútur prjónauppskrift
Couldn't load pickup availability
Þessi einfaldi og skemmtilegi klútur er skemmtilegt afgangaverkefni og líka fullkomið fyrir þessa einu geggjuðu hespu sem við kaupum stundum.
Klúturinn er með plíseraðri áferð, nokkurs konar origami eða þrívíddaráhrif, en ég var að leitast við að prjóna klút svipaðan þeim sem Amma mín átti þegar ég var lítil.
Garn: Fingering (fínband) garn, „sock“ tegundir gefa skýrustu áferðina. Klúturinn á myndunum er prj úr Fiðu frá Garnbúð Eddu.
Prjónar: Tveir prjónar eða hringprjónn. 3-3,5 mm eftir því hve fast er prónað.
Prjónfesta: Mynsturprjón, fram og til baka: 22L = 10cm. Þar sem um klút er að ræða er prjónfestan ekki heilög, fleiri L á 10cm gefa minni klút, færri L stærri.
Fylgihlutir: Geymslusnúra, ca 1m löng.
Framvindumerki, næla eða umferðateljari.
Stoppnál.
