Sívertsen uppskrift/knitting pattern
Sívertsen uppskrift/knitting pattern
Þessir grifflu-vettlingar eru hluti af gjörningnum „Húsin í bænum“, sjö pörum af vettlingum sem sækja fyrirmynd sína í hafnfirsk kennileiti. Þeir heita eftir Sívertsens-húsinu, sem er elsta hús Hafnarfjarðar og var byggt á árunum 1803-1805 af Bjarna riddara Sívertsen sem kallaður hefur verið faðir Hafnarfjarðar.
Verkefnið var unnið í samvinnu við Garnbúð Eddu á Strandgötunni og garnið að sjálfsögðu handlitað í Hafnarfirði, af stöllunum í Today I Feel á Hólshrauninu.
Litir, lögun og áferð grifflunnar og vettlingsloksins líkja eftir viðarklæðningu og þaki hússins. Gluggi er saumaður í lokið til skrauts í lokin, en valfrjálst er hvort það er gert.
Byrjað er á því að prjóna griffluna, annað hvort með magic-loop aðferðinni (og þá gjarnan báðar í einu) eða með sokkaprjónum. Báðar eru prjónaðar eins.
Þá eru teknar upp lykkjur á handarbakinu og vettlingslokið prjónað. Hér þarf að huga að hægri og vinstri.
Prjónar: Hringprjónn eða sokkaprjónar í grófleikanum 2,5 eða 3mm eða þeim grófleika sem þarf til að ná réttri prjónfestu.
Aukahlutir: 2 tölur. 2 prjónamerki, stoppnál, heklunál nr. 3.
Prjónfesta: 36L í stroffmynstri á grifflu = 10cm
Uppskriftin er á íslensku.