Vornæturregn uppskrift
Vornæturregn uppskrift
Aðferð
Bolurinn er prjónaður ofanfrá og skipt í ermar og bol að loknu berustykki. Mynstrið á
berustykkinu samanstendur af útaukningum sem taka yfir nokkrar umferðir í senn.
Ermarnar eru sýndar mjög stuttar, en mega að sjálfsögðu vera síðari. Bolurinn er án
útaukninga eða úrtöku.
Garn Aðallitur: Exquisite Lace frá West Yorkshire Spinners (80% ull, 20% silki – 800m í 100g). Það er líka kjörið að nota handlitaða silki/merino blöndu í sama grófleika.
Aðalliturinn er prjónaður tvöfaldur. Ég notaði 2 liti (Viscount/337 og
Lagoon/342), fyrst tvöfalt af fyrri litnum, síðan einn þráð af hvorum lit og
loks tvöfalt af seinni litnum.
Hálslíning: Smáræði af fíngarni (fingering), ég notaði handlitaða
smáhespu frá Eddu Lilju. Tilvalið að nota afgangsgarn. Prjónað einfalt.
Magn Aðallitur (alls): 140, 160 (170, 190, 200) 220, 230 grömm (ef nota á fleiri
en einn lit þarf að skipta magninu niður á litina)
Hálslíning: 5, 6 (6, 7, 7) 8, 8 grömm
Prjónar 4mm í aðalfleti, 3,5mm í stroffin. Hringprjónar, gott að nota magic loop
aðferðina í byrjun berustykkis og ermarnar. Athugið að aðlaga
prjónastærð að prjónfestunni ef þörf krefur.
Prjónfesta í sléttu einlitu prjóni í hring: 22 lykkjur gera 10cm.
7 stærðir Yfirvídd: 95, 105 (115, 125, 135) 145, 155 cm